Hrakfallabálkarnir

Hrakfallabálkarnir

18.03.2009 19:58:15 / hrakfallabalkur6

Saumó

Jæja hverjar ætla að mæta í saumó?? Er það á fimmt eða föst??
En það væri gott að fá að vita hverjar koma svo maður sé ekki að kaupa allt allt of mikið af mat :lol:

Svo þurfum við að ákveða tíma sem á að mæta á ;)

Kveðja Rannveig og Bára

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 14:41:02 / hrakfallabalkar

Saumó

Hæhæ

Var að tala við Rannveigu og þar sem það eru ekki búnir að vera 2 saumó í röð og ég er víst með núna í mars, og mikið að gerast hjá fólki þá, þá vorum við að spá í að halda saman og hafa mat, gera meira grand en annars yrði :)

hvernig lýst ykkur nú á það??

og hugmyndin var að halda þetta lau 21.mars, hvernig hentar það??
þar sem að Eva er busy næstu helgi og Dagný og Bára helgina eftir það..

Væri fínt að fá komment sem fyrst, svo hægt sé að plana og ákveða og staðfesta dagsetn eða laga ef til þarf :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

15.02.2009 22:01:46 / hrakfallabalkur6

Saumó

Sælar SKVÍSKUR 8)
Var að pæla hvort ég ætti að hafa saumó á þriðjud eða fimmtud, hvort hentar betur fyrir ykkur??

Kveðja Rannveig :d


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2009 22:06:30 / hrakfallabalkurdp

Afmælisferð ;)

Þar sem ég mun eiga afmæli í endan á mánuðinum og á laugardegi meira segja.:dÞá er búið að vera að tala um að fara í sumarbústað í svona stelpuferð. Ég er búin að panta sumarbústað yfir helgina 27 feb til 1 mars. Þannig að spurningin er hver er til í að koma með og skemmta sér aðeins ? :haha:
Svo ef einhver er til í að koma með þá þarf bara að fara að plana hluti eins og mat og svoleiðis. ;););)

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2009 20:29:07 / hrakfallabalkur6

Saumó í feb!!!

Var að pæla í að hafa saumó snemma í feb víst það er sumó ferð í lok mánaðarins :lol:
Hvaða dagar henta ykkur best???

Kveðja Rannveig


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2009 10:06:28 / hrakfallabalkar

hæhæ

Hæ skvísur
Hvað segi þið gott??
Hvað er eiginlega í fréttum hjá ykkur??

Verður e-r hittingur í janúar??

Annars er ég alltaf ein heima ;) hægt að kíkja til mín í heimsókn hvenær sem er.. spurning hvort við verðum með videokvöld eða spilakvöld, spjall eða e-ð sniðugt bara..

» 18 hafa sagt sína skoðun

02.01.2009 21:21:28 / hrakfallabalkur6

Gleðilegt ár kæru vinkonur

Jæja stelpur, er ekki komin tími á að fara að hittast ;)
Langt síðan síðast :lol:

Guðrún á að vera með saumó í jan, ætlar þú e-ð að breyta eða ???



» 12 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 06:44:12 / hrakfallabalkur1

Myndir

Ég er búin að setja inn myndirnar frá laugardeginum inn á Facebook!

Og þar sem ég sendi engin jólakort þetta árið þá vil ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar
Gleðileg Jól og farsældar á komandi ári!
Þakka það liðna!

Jólakveðja, Eva Rós

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2008 13:23:33 / hrakfallabalkar

Laugardagurinn

Hæhæ skvísur

Hvenær eigum við að hittast á laugardaginn???

» 12 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 20:19:06 / hrakfallabalkur1

uh I'm leaving!

Jæja þá fer að koma að brottför minni af landinu í bili. Eftir sólarhring þá verð ég yfir atlandshafinu á leið til Flórída...mmmm very nice!
En ég er líka með góðar fréttir! Ég er komin með leigjendur og búin að skrifa undir húsaleigusamning vúhú gaman gaman...get farið út áhyggjulaus :)
Anyways kannski best að fara að pakka núna....catch ya later!


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 13:39:47 / hrakfallabalkurdp

Jólamatur ;)

Ég er búin að panta borð fyrir 4 á Ítalíu þann 20 des kl 20.
Þá er bara að byrja að hlakka til og fara að telja niður dagana þangað til og merkja
við á dagatölin sín ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 11:25:30 / hrakfallabalkar

stjörnumerkin í bólinu ;)

Vatnsberi(20.jan - 18.feb)
Vatnsberinn þarf fyrst og fremst þolinmóðan, skilingsríkan og hlýjan bólfélaga. Rúmið þarf að uppfylla væntingar hans svo hann fái notið sín.
- Hræðist náin kynni.
- Feiminn en auðmjúkur
- Hann er yfirleitt feiminn
- Svolítið tilbaka í persónulegum samskiptum
- Fæstir komast í gegnum skelina og kynnast honum náið
- Hógværð hans er heillandi í rúminu
- Á erfitt með að vera opinnn og óheftur í rúminu
- Laðar að sér fólk sem hann þráir, slík er hugarorka vatnsberans
- Vill deila miklum tíma með elskhuga sínum í rúminu
- Getur verið allt með elskhuga sínum; jafningi, ástmaður, kennari, einlægur vinur og bólfélagi


Fiskur(19.feb - 20.mars)
Fiskurinn er stórkostlegur elskhugi svo lengi sem honum finnst hann vera verndaður tilfinningalega og elskaður alla leið. Vandræðin hljótast eingöngu ef fiskurinn elskar sjálfan sig ekki nóg.
- Dularfullur, fallegur, rómantískur í rúminu
- Oft flæktur í eigin tilfinningar og nær því ekki að einbeita sér nóg
- Á það til að forðast velgengni og eyðir lifi sínu í dagdrauma.
- Gæddur mjúkum, rafmögnuðum ákafa eins og nýtur þess að kúra
- Nýtur þess að láta drottna yfir sér (í rúminu) en stefnir um leið að því að hafa stjórn
- Vill að kynlífið sé skemmtilegt, margslungið og tilbreytingaríkt
- Kynlífið er könnunarferð í huga fisksins
- Hann leitar að sameiningu ástar og kynlífs með elskhuga sínum
- Leitar eftir samböndum sem fylla hann von og ást
- Hann heldur tryggð við konuna sem hann fellur fyrir


Hrútur(21.mars - 19.apríl)
Hrúturinn nálgast kynlífið eins og allt annað í lífinu: hvatvís og kappsfullur. Hann er opinn fyrir öllu en elskhugi hans ætti ekki að spyrja hann um morgundaginn því hann er ekki fyrir kynferðislega einokun.
- Sængurver úr silki eða satín eflir hvatir hrútsins
- Rómantískur, ástríðufullur, kynferðislegur og lostafullur
- Kröfuharður og fyrir honum er rúmið orustuvöllur nánast
- Elskhugi hrútsins þarf að þola sálrænt ástand og geta sætt sig við þá orku sem fylgir reiði og ákveðni og ekki síður orku ástarinnar
- Líkar vel að skreyta rúmið með óteljandi púðum
- Næmur, heiðarlegur og hefur óbeit á uppgerð í rúminu
- Þolir ekki að láta sér leiðast
- Hann er hvetjandi og drífandi.
- Hann tilheyrir eldmerki: trygglyndur og örlátur á atlot og strokur
- Hann þarfnast félaga sem er jafn ákveðinn og hann í rúminu


Krabbi(22.júní - 22.júlí)
Krabbinn er feiminn en hefur ríka kynhvöt.Kynlíf er krabbanum kjarni lífsins og tal hans, lykt, matargerð og bros geisla af kynþokka
- Hart rúm stuðar krabbann nánast
- Vill sökkva með elskhuga sínum inn í nóttina áhyggjulaus og frjáls
- Næmur á fólk og umhverfið og kýs þess vegna snyrtilegt mjúkt rúm
- Næmi og innsæi hans eru slík að hann er mjög viðkvæmur fyrir rúminu
- Allra manna þolinmóðastur í rúminu
- Ástarvef sinn vefur krabbinn fínlega og dramatískt í rúminu
- Púðar skipta engu máli heldur þarf rúmið að vera hreint og fallega búið
- Flekandi og föðurlegur í samskiptum við elskhuga sína
- Leitast við að prófa sig áfram í rúminu


Ljón(23.júlí - 22.ágúst)
Stærsta vandamál ljónsins er óraunhæfar væntingar í rúminu. Það vill hart stórt rúm og kýs helst að sofa,lesa,elskast og borða í rúminu allan sólahringinn.
- Geislar af sjálfsöryggi og reisn í rúminu (sjálfsöryggið ómótstæðilegt).
- Getur verið ákaflega kröfuhart við elskhuga sinn og jafn örlátt
- Svo fremi sem því finnst það vera elskað eða eftirsótt þá er það nokkuð öruggt í rúminu
- Þegar það er ástfangið reynir það í sífellu að sigrast á tregðu sinni til að leggja eitthvað á sig fyrir aðra
- Kýs tvær sængur því það gefur ekkert eftir í svefni og vill helst hafa sængina milli læranna
- Ljónið þarf ástvin sem skilur eigin væntingar varðandi athafnir í rúminu svo hann geti aðstoða það við að verða meðvitað um sínar
- Elskhugi ljónsins þarf að búa yfir óbugandi þolinmæði í rúminu
- Auðmýkt ekki til í ljóninu
- Með skjalli er hægt að láta það gera hvað sem er í rúminu


Naut (20.apríl - 20.maí)
Nautið þarf þægilegt rúm og elskhuga sem endurspeglar styrk þess og tilfinningalegan stöðugleika í rúminu.
- Ímyndunarafl er óþarft ef nautið er ánægt
- Mjög rómantískt og viðkvæmt
- Blítt, fálátt og feimið í rúminu
- Þægindi og ánægja skipta nautið miklu máli og þá eru þægilegir koddar mikilvægir
- Staðfast og heimakært og kýs því þægilegt rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag
- Er mjög gefandi í samskiptum við elskhuga sinn í rúminu
- Það er opið til líkama, sálar og anda
- Þegar því líður vel í rúminu gefur sig allt


Tvíburar(21.maí - 21.júní)
Skilmálar í rúminu er eitthvað sem tvíburinn hreinlega þolir ekki. Hann er hamingjusamastur þegar hann elskar og nær að hvílast vel.
- Skemmtilegur og örvandi í rúminu
- Honum verður aldrei orðavant þegar elskhugi hans nennir að kjafta alla nóttina
- Mjög heillandi elskhugi og tillitssamur svo lengi sem hans helmingur(í
rúminu) stendur óáreittur
- Hann hefur mikið skopskyn og hnittni hans og töfrar eru á við forleik í rúminu
- Þráir að vera elskaður af ákafa og veltast um rúmið ef plássið leyfir
- Tvíburanum er vel við börn og þarf stórt rúm svo öll fjölskyldan geti sofið þar


Meyja(23.ágúst - 22.sept)
Meyjan verður að fá að sofa út þegar hún er þreytt til að geta blómstrað í rúminu. Kröfuharkan verður nánast engin þegar hún sefur í góðu rúmi.
- Hreinleg og ástríðufull
- Rómantískur og gefandi þegar ástarleikurinn hefst
- Það líkist töfrabrögðum svo kynþokkafull er meyjan í svefni jafnt sem vöku
- Meyjan álítur snertingu eðlilegan þátt í rúminu
- Hún gerir mjög miklar kröfur og leitar alla tíð að fullkomnun í rúminu
- Aðeins þrá meyju eftir ástarævintýri jafnast á við mikla forvitni hennar
- Hann er innilega forvitin í rúminu
- Þarf elskhuga sem vill eiga auðugt og spennandi kynlíf
- Þarf elskhuga sem er frjáls til líkama og sálar
- Þarf elskhuga sem er örugg með kynlífstækni sína í rúminu


Vog(23.sept - 23.okt)
Elskhugi vogar verður að vera þolinmóður og skiliningsríkur og viðurkenna þörf hennar fyrir aðdáun og blíðu í rúminu.
- Þegar vogin hefur fundið ástina er ekki aftur snúið
- Undanlátssöm í rúminu
- Kýs að þóknast öðrum en getur líka verið ákveðin í rúminu
- Leitar í sífellu að fyrirmyndar elskhuga í rúminu og þegar hún finnur hann er hún sátt að eilífu
- Nákvæm og vandlát í rúminu
- Henni er illa við hirðuleysi og vill því að rúmið sé snyrtilegt og vel búið um
- Illa við einveru og kýs að hafa einhvern hjá sér öllum stundum upp í rúmi
- Kýs ástvinu sem getur nært hana á tilfinninga- og kynferðislega sviðinu í rúminu


Sporðdreki(24.okt - 21.nóv)
Sporðdrekinn nær taki á elskhuga sínum með persónutöfrum sínum,dýpt og þrautseigju í rúminu.
- Stjórnsamur en ákaflega trygglyndur og næmari en nokkurn grunar í rúminu
- Skynhneigður og ástríðufullur elskhugi
- Eigingjarn og jafnvel leynilega sadískur í rúminu ef hann treystir og tengist náið elskhuga sínum
- Öfgafullur, allt eða ekkert í rúminu
- Afbrýðisamur ef elskhugi gefur sig ekki allan í rúminu
- Þegar sporðdrekinn er ástfanginn getur hann verið kynþokkafullur með afbrigðum
- Hann er fæddur til kynlífs og valda og það á einnig við í rúminu
- Kröfuharður og lostafullur og kýs að hafa umhverfið á sömu nótunum (stórt og mikið rúm og silkirúmföt)


Bogmaður(22.nóv - 21.des)
Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður sem
er og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum og
hugsjónum.
- Einlægur
- Hreinn og beinn
- Fyrir honum er kynlíf hátíð
- Í kynlífsfélaga sínum leitar hann að félaga og samferðaelskhuga
- Harðbrjósta, tilfinningalaus (ónærgætinn)
- Heiðarlegur og lætur ekki bjóða sér neitt undirferli
- Hann hefur mikla þörf fyrir stöðuga örvun í ástarsambandi
- Hann lætur oft slag standa með ókunnugum og hefur elt margar myndarlegar
manneskjur sem hann er hrifinn af á röndum(gefst ekki upp)
- Sterkt fegurðarskyn hans gerir hann að stórkostlegum félaga í ástarleikjum


Steingeit(22.des - 19.jan)
Kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar en þeir
fullnægja aldrei þörf hennar fyrir veraldlega viðurkenningu í rúminu
- Kynlífsglatt stjörnumerki
- Steingeitin er raunsæ og rómantísk í rúminu
- Kýs hæfileikaríkan elskhuga með sterkt ímyndunarafl
- Stekkur aldrei inn í ný sambönd án langs undirbúnings
- Þegar steingeitin elskar loksins, elskar hún ákaft og af öllu hjarta
- Auðsærð í rúminu
- Er sjálfri sér næg í rúminu en leitar samt verndar sem hún finnur í góðu
sambandi þar sem jafnvægi ríkir
- Þarf ást en óttast um leið sársaukann sem hún kann að valda
- Kynþokki hennar vex með aldrinum og sömuleiðis leikirnir sem fram fara í
rúminu
- Gott úthald í rúminu



» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 19:44:56 / hrakfallabalkur1

Litlu jólin

Jæja þá fer senn að líða að jólum og ætlum við að halda okkar árlegu "litlu jól" . Þau verða 20 desember og ákveðið hefur verið að fara út að borða á Ítalíu. Ætlum við að skiptast á jólagjöfum frá Secret Santa.
Nú er bara spurningin hvort Guðrún vilji vera með þetta árið?
Svo minni ég á hittinginn heima hjá mér í GBR á laugardagskvöldið. Eigum við ekki að segja að þetta byrji kl.20:00! Hlakka til að sjá ykkur!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 16:24:13 / hrakfallabalkur1

Saumó

Jæja þá er það ákveðið. Næst saumaklúbbur verður heima hjá mér þann 8 nóvember...mæting milli kl.20-21 ... ákveðum það bara þegar nær dregur! :)
...see you later girls!
Adios

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 06:09:31 / hrakfallabalkur1

Saumó

Jæja það er komið upp að Guðrún kemst ekki 8 nóvember, svo það er spurning með 7.nóv en bara ef Guðrún kemst pottþétt 7 nóv ... annars verður hann 8 þar sem allir vildu frekar hafa hann á laugardeginum. Þannig þetta er núna allt undir Guðrúni komið hvort hann verður 7 eða 8 nóvember!?!?

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 35
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 141748
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan